Iceland Seafood International hf: Óskuldbindandi viljayfirlýsing í eignarhlut félagsins í Ahumados Domínguez

GlobeNewswire Logo

Iceland Seafood International hf. („ISI“ eða „félagið“) hefur móttekið óskuldbindandi viljayfirlýsingu í 85% eignarhlut sinn í Ahumados Domínguez S.A.

Um óskuldbindandi viljayfirlýsingu er að ræða og óljóst er hvort af mögulegum viðskiptum verði en þau eru meðal annars háð:

  • frekari samningaviðræðum milli aðila;
  • gerð og undirritun endanlegra samninga;
  • fullnægjandi niðurstöðum áreiðanleikakannana;
  • samþykki skuldabréfaeigenda ISI hf. og samþykki lánveitenda félagsins, eftir því sem við á;
  • nauðsynlegum samþykktum og heimildum;
  • samþykki stjórnar ISI; og
  • öðrum hefðbundnum skilyrðum fyrir lokun viðskipta af þessum toga.

Félagið mun upplýsa markaðinn um frekari þróun mála í samræmi við upplýsingaskyldu sína samkvæmt lögum, reglum Nasdaq Iceland og reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014 um markaðssvik (MAR), sbr. lög nr. 60/2021, um aðgerðir gegn markaðssvikum.

Frekari upplýsingar veita: 

Ægir Páll Friðbertsson
CEO, Iceland Seafood International hf.
[email protected]
+354 898 0813

Alda Björk Óskarsdóttir
CFO, Iceland Seafood International hf.
[email protected]
+354 782 0679

Þessi tilkynning inniheldur upplýsingar sem töldust eða kunna að hafa talist innherjaupplýsingar í skilningi 7. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014 um markaðssvik (MAR), sbr. lög nr. 60/2021, um aðgerðir gegn markaðssvikum.